1. absalút gamall kastale 12.01.08 til 23.02.08

    Gallerí Ágúst fagnaði árinu 2008 með ævintýralegri málverkasýningu Davíðs Arnar Halldórssonar. Davíð Örn er þekktur fyrir að nota djarfa liti og óhefðbundin efni í verk sín svo sem bílalakk, olíupastel og úðabrúsalakk til þess að ná fram sterkum frásagnaráhrifum. Hann málar gjarnan á fundið efni, oftast viðarplötur en einnig vinnur hann beint á veggi og vann m.a. stóra veggmynd beint á veggi gallerísins á þessari sýningu.

    Árið 2007 gerði Davíð Örn Halldórsson víðreist. Hann var í hópi íslenskra listmálara sem voru valdir til að sýna á HangArt-7 sýningunni í Salzburg í haust þar sem verk hans vöktu mikla athygli. Hann sýndi einnig í New York og Reykjavík en í Moskvu var sett upp geysistórt veggverk utan á blokk eftir málverki hans á Rozamira listahátíðinni í Rússlandi.

    ENGLISH:

    Gallery Agust welcomes the new year 2008 with an adventurous exhibition of Davíð Örn Halldórsson’s absalút gamall kastale. Davíð is known for vibrant colours and unusual media in his work, but he paints on wooden boards with oil, spray-paint, and industrial enamel. The exhibition includes paintings and a big mural the artist made on the centre wall of the gallery. In the year 2007 the artist exhibited in New York and Reykjavik and took part in the HangArt-7 exhibition in Salzburg. During the Rozamira arts festival in Moscow, Russia, a large mural was created on a multistorey house after one of his paintings.

    absalút gamall kastale - Davíð Örn Halldórsson

    • Hvernig virkar borgarvirki?

      2008

      Málverk / Painting

      50 x 78 cm

    • In the valley

      2007

      Lakk og málning á viðarplötu

      70 x 90 cm

    • Kingdom of heaven

      2008

      Málverk / Painting

      50 x 70 cm

    • Marmara

      2007

      Lakk og málning á viðarplötu

      55.5 x 44 cm

    • Satalite

      2007

      Málverk / Painting

      43.5 x 65.5 cm

    • absalút gamall kastale

      Yfirlit / Overview

    • absalút gamall kastale

      Yfirlit / Overview