Laugardaginn 13. febrúar opnaði Einar Garibaldi einkasýningu sína Grand Tour í Gallerí Ágúst. Á sýningunni eru fundin málverk (Tableaux trouvés) sem Einar hefur safnað á götum sögufrægra borga Ítalíu á undanförnum árum, en titill sýningarinnar vísar til „Grand Tour” ferðanna er náðu hámarki sínu á 18. öldinni. Litið var á ferðirnar sem miklvægan hluta menntunar ungra norrænna heldrimanna og var ætlað að fullkomna þekkingu þeirra í tungumálum, fræðum, skáldskap og listum. Slíkar ferðir stóðu yfir mánuðum saman og lá leiðin gjarnan til Ítalíu, vöggu vestrænnar menningar. Fræg skáld og listamenn gerðu þessar lærdómsferðir ódauðlegar í verkum sínum og dagbókarfærslum en á síðasta áratug hefur Einar ferðast í fótspor hinna þekktu ferðalanga um Ítalíu, þar sem hann hefur m.a. starfað sem leiðsögumaður. Líta má á hin fundnu málverk sem dagbókarfærslur hans, með vísunum til þeirra listamanna er tóku sér þetta ferðalag á hendur í leit að skilningi á sameiginlegri arfleið okkar. Málverk Einars hafa lokið fyrra hlutverki sínu sem viðvörun til vegfaranda um að þeir séu nú að fara út á „ómálað“ svæði óþrjótandi möguleika, allt eftir því hvaða lærdóm hver og einn vill draga af gangi sögunnar.
Einar Garibaldi Eiríksson býr og starfar í Reykjavík en hann stundaði myndlistanám við Myndlista - og handíðaskóla Íslands og útskrifaðist frá Accademia di Belle Arti di Brera í Mílanó á Ítalíu árið 1991. Einar hefur haldið nánum tengslum við Ítalíu og sýnir þar reglulega. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum í hátt í 3 áratugi ásamt því að vera sýningarstjóri og sinna kennslu um árabil. Einar var prófessor við Listaháskóla Íslands á árunum 2000-2008. Verk hans eru í eigu helstu safna landsins ásamt fjölmörgum einkasöfnum. Einar hlaut listamannalaun árið 2009 og nýlega lauk hann tveggja mánaða dvöl við vinnustofuna Kjarvalsstofu í París.
ENGLISH:
Gallery Agust is proud to announce the opening of the solo exhibition of Einar Garibaldi Eiriksson, Grand Tour / 1998 - 2010, on Saturday 13th of February. Grand Tour consists of found paintings or “Tableaux Trouvés” which the artist has been collecting for the past dozen years from various cities in Italy. The title of the exhibition refers to the grand tour travels of the past when young aristocratic men would visit the cradle of European culture and study art, language and literature. Einar Garibaldi Eiriksson lives and works in Reykjavik, Iceland. He studied at the Iceland College of Art and Crafts and graduated from Accademia di Belle Arti di Brera in Milano, Italy in 1991. Einar has kept a good contact with Italy and exhibits there regularly. He has participated in and curated numerous exhibitions as well as being a professor at the Icelandic Art Academy for many years. His work can be found in the collections of the main museums in Iceland. He has received numerous honors and stipends during his career.
The exhibition Grand Tour is on view until the 27th of March.
Einar Garibaldi á Ítalíu við undirbúning sýningarinnar Grand Tour.
Einar Garibaldi in Italy preparing the exhibition Grand Tour.
2000
60 x 60 cm
1998
80 x 80 cm
2008
60 x 60 cm
2007
Frá sýningunni Punto di fuga í Bergamo á Ítalíu árið 2007.
Skorin strigi, 100 x 100 cm
From the exhibition Punto di fuga in Bergamo, Italy, 2007.
Cut canvas. 100 x 100 cm