1. Margsaga / Equivocal 16.08.08 til 11.10.08

    Marsaga

    "Við erum stödd innandyra og horfum út. Við erum stödd utandyra og horfum inn. Kona í rauðri kápu, hjólhýsi eftir miðnætti, gul gluggatjöld – allt eru þetta vísbendingar í brotakenndri frásögn sem vekja upp spurningar frekar en að gefa svör. Í myndaröðinni Margsaga verðum við vitni að óljósum atburðum sem við höfum óvart ratað inní. Eins og óboðnir gestir í sviðsmynd sem neitar að uppljóstra hvort hún sé raunveruleg eða skálduð. Brotin raðast saman og þröngva upp á okkur margræðri atburðarrás. Hvort sem okkur líkar betur eða verr."
    Katrín Elvarsdóttir

    Katrín Elvarsdóttir (1964) útskrifaðist með BFA gráðu frá Art Institute of Boston árið 1993 og hefur síðan tekið þátt í fjölda samsýninga og haldið einkasýningar í Bandaríkjunum, Rússlandi, Frakklandi og víðar. Ljósmyndabók hennar Mórar-nærvídd, unnin með tónlistarmanninum Matthíasi Hemstock, kom út hjá 12 Tónum 2005. Í bókinni sameinast draumkenndar ljósmyndir Katrínar af íslensku umhverfi og draugalegar hljóðmyndir Matthíasar. Árið 2007 hélt Katrín tvær einkasýningar á Íslandi, ,,Af þessum heimi”, í Listasafni ASí, og ,,Sporlaust” í Þjóðminjasafni Íslands. Verk Katrínar eru m.a. í eigu Listasafns Reykjavíkur, Þjóðminjasafns Íslands, Listasafns Akureyrar og Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Katrín er jafnframt þátttakandi í samsýningunni ,,Endurkast/Reflection – íslensk samtímaljósmyndun” sem nú stendur yfir í Þjóðminjasafninu og nýlega kom út samnefnd bók með verkum frá sýningunni og viðtölum við listamennina. Katrín hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir ljósmyndir sínar; 2007 var hún tilnefnd til Heiðursverðlauna Myndstefs.

    Allar nánari upplýsingar um verk til sölu og verð eru veittar með ánægju hjá Gallerí Ágúst.

    ENGLISH:

    Equivocal

    "We are inside looking out. We are outside looking in. A woman in a red coat, a mobile home after midnight, yellow curtains – these are all clues in a fragmented narrative that raises questions rather than provides answers. In the photography series “Equivocal” we witness enigmatic events that we inadvertently have taken part in. Like uninvited guests in a scenario that refuses to reveal whether it is fact or fiction. The fragments combine in multiple ways and force upon us incomplete story lines of an ambiguous nature. Whether we like it or not."
    Katrín Elvarsdóttir

    Katrin Elvarsdóttir (b.1964) graduated with a BFA degree in photography from the Art Institute of Boston 1993. She has participated in numerous group shows and held several solo exhibitions in Europe and the U.S. Her book Revenants-Proximal Dimension was published by 12 tonar in 2005. In the book haunting photographs of Iceland’s abandoned countryside combine with eerie soundscapes by Icelandic musician Matthías Hemstock. Katrin had two solo exhibits in 2007, Of This World, which was held at the ASI Art Museum and Without a Trace at the National Museum of Iceland. Katrin’s photographs have gotten numerous honorary mentions and prizes. Most recently she was nominated for Icelandic Visual Arts Copyright Association 2007 Honorary Award. Her works are in the collections of Reykjavik Art Museum, National Museum of Iceland, Akureyri Art Museum and The Reykjavik Museum of Photography. Katrin lives and works in Reykjavik.

    Please contact the gallery for sales inquiries.

    Katrín Elvarsdóttir - Katrín Elvarsdóttir

    • Drengur í rigningu / Boy in rain

      2008

      Ljósmynd / Photograph

      92 x 67 cm

    • Gul gluggatjöld III

      2008

      Ljósmynd

      92 x 67 cm

    • Kona og eldur

      2008

      Ljósmynd

      53 x 68.5 cm

    • Kona í rauðri kápu / Woman in red coat

      2008

      Ljósmynd / Photograph

      92 x 67 cm

    • Margsaga / Equivocal

      2008

      Yfirlit / Overview

      From the exhibition Equivocal in Gallery Agust 2008.

    • Sjonvarpsstofa

      2008

      Ljósmynd

      53 x 73