1. Menningardagskrá 18. desember kl. 17-19 13.12.09 til 18.12.09

    Föstudaginn 18. desember býður Gallerí Ágúst til svolítillar menningarveislu seinnipart dags. Milli klukkan 17 og 19 munu rithöfundar og tónlistarfólk koma í heimsókn og deila með gestum brotum úr verkum sínum. Rithöfundarnir Oddný Eir Ævarsdóttir og Jón Karl Helgason munu koma og lesa fyrir gesti úr verkum sínum og í kjölfarið koma ungir tónlistarmenn og kynna nýútkomnar plötur sínar, með ljúfri og notalegri tónlist. Veigar og veitingar verða í boði og því alveg tilvalið að koma við í galleríinu og styrkja sig áður en haldið er í jólarölt um bæinn, en verslanir í miðbænum verða opnar fram á kvöld. Verið hjartanlega velkomin í menningarveislu!

    ENGLISH:
    On Friday the 18. December between 5-7 pm Gallery Agust invites you to a cultural cocktail hour with authors reciting from their new books and young musicians sharing music from fresh released records. Come and enjoy a drink, music and art before going Christmas shopping.

    UPPLÝSINGAR AF VEFSLÓÐ BÓKAFORLAGSINS BJARTS: www.bjartur.is

    JÓN KARL HELGASON: Mynd af Ragnari í Smára.
    Tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna

    Ragnar í Smára var goðsögn í lifanda lífi; kraftmikill sveitastrákur úr Flóanum sem gerðist iðnrekandi, bókaútgefandi, málverkasafnari og lífið og sálin í íslensku tónlistarlífi um áratugaskeið. Ragnar var margbrotinn persónuleiki sem átti í nánu sambandi við alla helstu listamenn þjóðarinnar og þær hræringar í menningu og pólítík sem skóku þjóð hans og veröldina alla á tuttugustu öld.
    Lesandi þessarar bókar slæst í för með forleggjaranum sem er á leið á Nóbelshátíð í Stokkhólmi í desember- mánuði árið 1955. Meðal þeirra sem á vegi hans verða eru Jón Stefánsson listmálari, Jón Helgason prófessor, Sigurður Nordal sendiherra og Halldór Laxness rithöfundur en við sögu kemur einnig fjöldi annarra einstaklinga, þekktra og óþekktra, sem eiga líf sitt og auðnu með einhverjum hætti undir hinum listelska athafnamanni.

    Jón Karl Helgason, sem hefur um árabil rannsakað líf Ragnars, byggir frásögn sína á einkabréfum hans og vina hans, samtölum við samferðamenn og fjölmörgum öðrum birtum og óbirtum heimildum. Jón Karl dregur upp stílfærða mynd af heillandi og breyskum eldhuga, vináttu og átökum, og mikilvægum kafla í íslenskri menningarsögu. Jón Karl er dósent við íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Meðal fyrri bóka hans eru Hetjan og höfundurinn (1998), Næturgalinn (1998), Höfundar Njálu (2001) og Ferðalok (2003).

    ODDNÝ EIR ÆVARSDÓTTIR: Heim til míns hjarta.

    Oddný Eir gaf Bjarti fyrst undir fótinn um miðjan tíunda áratuginn þegar hún tók þátt í póstkortasamkeppni forlagins og var hún meðal þeirra sem komust í fjórtán liða úrslit. Það var hins vegar ekki fyrr en vorið 2004 að hún slóst í hóp bókarhöfunda forlagins þegar verk hennar Opnun kryppunnar kom út í ritröðinni Svörtu línunni.

    Oddný Eir er heimspekingur, menntuð í París, en hún hefur einnig rekið útgáfufyrirtækið Apaflösu ásamt Ugga Ævarssyni, skrifað kvikmyndahandrit og unnið við ferðaþjónustu á einskonar uppeldisstöðvum sínum á Grímstöðum á fjöllum og stundað rannsóknir á minjamenningu og myndlist á Íslandi og unnið með fjöldanum öllum af lista- og fræðimönnum. Oddný Eir er óforbetranlegur safnari, áhugamanneskja um brúðuleikhús og katakombur, aðdáandi Chaplins, Derrida, Milans Kundera og Hönnuh Arendt, unnandi smávindla og afkomandi Bólu-Hjálmars.

    UPPLÝSINGAR UM TÓNLISTARMENNINA JÓN TRYGGVA OG UNI

    Þann 1. Desember 2009 gaf Jón Tryggvi út sína firstu sóló plötu "Silkimjúk er syndin". Platan inniheldur 12 frumsamin lög en tvö af þeim er samin við ljóð Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi, annarsvegar og Steins Steinarrs hinsvegar, annars eru aðrir textar eftir Jón. Jón Tryggvi heldur sig í þjóðlaga stíl en ferðast innan hanns um lendur bláma og trega, í gleðilegt kántrí og loks lætur hann kassagítarinn finna fyrir því í einhverskonar þjóðlaga rokki í nokkrum lögum. Hann fékk til liðs við sig valinkunna tónlistamenn til að skapa plötuna. Á trommur lék Óskar Þormarsson sem hefur einnig spilað með Fjallabræðrum, Bryjar Páll Björnsson úr Múgsefjun lék á bassa og Halldór Smárason lamdi ýmsar gerðir hljóð lykla þ.á.m. Harmonikku,
    hundrað ára gamalt og rammfalskt piano, Hammond og Whulitzer. Plötuna má t.d. finna í Skífunni, Smekkleysu og Eymundsson en einnig er hægt að panta hana á netinu á www.jontryggvi.bandcamp.com

    Unnur Arndísardóttir, eða Uni eins og hún kallar sig (borið fram Úní), gaf út sína fyrstu sólóplötu 1 Desember sl. Platan heitir "Enchanted"og inniheldur 12 frumsamin lög. Öll lög á plötunni eru eftir Uni fyrir utan 2, en þau eru eftir Baldvin Frey Þorsteinsson annars vegar og Andrés Lárusson hins vegar. Uni hefur lært tónlist frá unga aldri en lærði nú seinast tónsmíðar í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum. Platan "Enchanted" inniheldur fallegar, þjóðlegar og innilegar tónsmíðar. Þar sem náttúran er aðal áhrifavaldurinn. Hægt er að heyra tóndæmi af þessari nýju plötu áwww.uniuni.bandcamp.com

    Menningardagskrá í desember 2009 - Menningardagskrá í desember

    • Höfundurinn Oddný Eir Ævarsdóttir

      -

    • Gallery Agust entrance on Nönnugata

      -

    • Heim til míns hjarta

      -

      Kona með kramið hjarta leitar sér hjálpar á hæli. Sérfræðingar komast að þeirri niðurstöðu að hún sé útbrunnin og bregða á það ráð að gera tilraunir til að eima hjarta hennar í anda ilmvatnsgerðar. Ögrandi ævintýri rifjast upp og úr hjartanu streymir hvort tveggja í senn, ilmur af ástríðu og ódaunn af sársauka. Á konuna leita spurningar um ást og traust, kvenleika og punga, ónæmiskerfi framtíðar og endurfæðingu kátínunnar.

    • Höfundurinn Jón Karl Helgason

      -

    • Mynd af Ragnari í Smára

      -

      Ragnar í Smára var goðsögn í lifanda lífi; kraftmikill sveitastrákur úr Flóanum sem gerðist iðnrekandi, bókaútgefandi, málverkasafnari og lífið og sálin í íslensku tónlistarlífi um áratugaskeið. Ragnar var margbrotinn persónuleiki sem átti í nánu sambandi við alla helstu listamenn þjóðarinnar og þær hræringar í menningu og pólítík sem skóku þjóð hans og veröldina alla á tuttugustu öld.

    • Uni & Jón Tryggvi

      Menningardagskrá 18. desember