Það er með mikilli ánægju að Gallerí Ágúst kynnir óvenjulega sýningu listamannsins Steingríms Eyfjörð á teikningum og skissum. Steingrímur hefur getið sér gott orð sem listamaður allt frá áttunda áratugnum og var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum árið 2007 með sýninguna Lóan er komin (The Golden Plover has arrived). Þessi sýning á teikningum og skissum Steingríms er sérstök að því leyti að hún er afrakstur skipulagðrar flokkunar á efni í eigu listamannsins, sem Elín Þórhallsdóttir listfræðinemi og Sólveig Bjarnadóttir bókasafnsfræðingur sáu um. Þær flokkuðu skissur og bréf, teikningar og skjöl þar til ljóst var að gullmolarnir sem fundust voru orðnir að efni í sýningu. Hér gefst gestum kostur á að fletta í gegnum fjöldann allan af verkum frá ólíkum tímabilum á ferli Steingríms. Þetta er einstakt tækifæri til að skoða vinnuaðferðir listamannsins og eignast verk eftir einn virtasta listamann þjóðarinnar.
Annar nánari upplýsingar um verð og verk til sölu veittar í Gallerí Ágúst.
Athugið að hægt er að sjá sjónvarpsþáttinn Kátu maskínuna á vefnum, með viðtali við Steingrím Eyfjörð og umfjöllun um sýninguna Teikningar & skissur í Gallerí Ágúst og sýninguna Við erum hinir í Orkuveitunni. Vefslóðin er: http://skjarinn.is/einn/veftivi/kata-maskinan/860/?autostart=True
ENGLISH:
It is a great honor for Gallery Agust to present an unusual exhibition of Steingrimur Eyfjord. The show consists of drawings and sketches which span his long and successful career. Guests are invited to browse through numerous pieces from different chapters of the artist’s career. Steingrimur Eyfjord represented Iceland at the 2007 Venice Biennale with his exhibition The Golden Plover has arrived.
2005
2005
2005
2005
1980
2005
2005
2005