1. Prophecy 1 18.08.07 til 18.08.07

    Á Menningarnótt í Reykjavík hélt performancedúettinn Technowitch tónleika í Gallerí Ágúst. Technowitch er samstarfsverkefni myndlistarkonunnar Ásdísar Sifjar Gunnarsdóttur og tónlistarmannsins Gísla Galdurs Þorgeirssonar. Ásdís hefur getið sér gott orð fyrir gjörninga, innsetningar og myndbandsverk sín og er um þessar mundir með sýningu í Gallerí Ágúst. Gísli er þekktur sem plötusnúður og ein aðalsprauta hljómsveitarinnar Trabant. Tónleikarnir voru spádómur í tónlistarformi og voru áhorfendur vel með á nótunum. Ásdís og Gísli könnuðu framtíðina og rannsökuðu ýmis "sækadelísk" málefni í gjörningi sínum.

    Technowitch - Technowitch

    Prophecy 1 þann 18. ágúst 2007

    • Prophecy 1

      Mynd frá atburði / Photo from event

    • Technowitch

      Mynd frá atburði / Photo from event

    • Áhorfendur

      Mynd frá atburði / Photo from event