1. Um sérstakt framlag Íslands og íslensks samfélags til sögu ófullkomleikans 24.10.09 til 12.12.09

    (ENGLISH BELOW)

    Um sérstakt framlag Íslands og íslensks samfélags til sögu ófullkomleikans. Ljósmyndir frá Íslandi 1930-1945 - Safnað af Sigurði Guttormssyni (1906-1998). Á sýningunni í Gallerí Ágúst sýnir Unnar Örn ljósmyndir teknar af híbýlum Íslendinga á fyrri hluta tuttugustu aldar. Líkt og í mörgum fyrri verka sinna leitar Unnar í rann sögunnar og varpar hér ljósi á heimildir tengdar stéttabaráttu, róttækni, heildarhyggju og hugsjónum þessa umbrotatíma. Ljósmyndunum var safnað af Sigurði Guttormssyni, bankastarfsmanni og umbótamanni frá Vestmannaeyjum. Hann ferðaðist um Ísland á árunum 1930 – 1945 og lagði sig fram um að taka myndir af húsakosti landsmanna sem hann taldi til merkis um óviðunandi lífsskilyrði alþýðufólks. Alls voru myndirnar sem Sigurður safnaði um 230 talsins en með svo stóru safni ljósmynda vildi hann sýna og sanna að í raun væri til stéttamismunur á Íslandi. Það var von Sigurðar að með því að gangast við þessum hluta veruleikans gæti þjóðin upprætt misrétti og jafnað kjör manna. Myndirnar, sem varðveittar eru á Þjóðskjalasafni Íslands, eru teknar á árunum um og eftir heimskreppuna miklu og veita óvenjulega og raunsæja innsýn í lífsskilyrði Íslendinga á þessum tíma.

    Myndunum, er varpað af skyggnuvél á miðjuvegg gallerísins en einnig birtast þær áhorfandanum á sýningunni sem 240 blaðsíðna bókverk og má þannig skoða þær sem heild útfrá staðsetningnum og athugasemdum Sigurðar. Í sýningarrýminu er einnig að finna verk sem Unnar Örn lítur á sem einskonar neðanmálsgreinar við skyggnuverkið, sem sýningin hverfist um. Þessi verk eru öll unnin upp úr prentefni og tímaritum frá árunum 1940-1970. Þeim er ætlað að gefa innsýn í annarskonar raunveruleika en sjást á ljósmyndunum, sem þó er sprottinn af sama meiði og sú hugmyndafræði sem myndasafn Sigurðar er byggt útfrá. Á þessum forsendum fá ljósmyndir Sigurðar margrætt hlutverk sem myndbrot af aðstæðum efnaminni íslendinga en vekja jafnframt upp spurningar um brotakennda þróun byggingarlistar hérlendis, tengsl bæjarskipulags og sveitamenningar sem og sjálfsmynd þjóðar í mótun.

    Unnar Örn (1974) býr og starfar í Reykjavík og Atlanta í Bandaríkjunum. Hann útskrifaðist frá Myndlista- og Handíðaskóla Íslands 1999 og lauk mastersnámi við Malmö Art Academy í Svíþjóð 2003. Unnar Örn vinnur gjarnan sýningar sínar útfrá skjölum safna og “arkífa” og tengir þannig opinbera sögu við sitt eigið yfirgripsmikla heimildasafn sem hann hefur fangað úr ólíkum áttum. Með því leggur hann sig fram um að endurspegla birtingarmyndir ýmissa hugmyndakerfa sem lögð hafa verið til grundvallar ákvarðanna í sögunni. Unnar Örn hefur valið ýmsa miðla fyrir verk sín ekki hvað síst bókverk, auk annars prentverks, innsetninga, klippimynda og langvarandi sýningarverkefna. Bókverk Unnars Arnar er í takmörkuðu upplagi og er til sölu í Gallerí Ágúst.

    ENGLISH:

    ON THE SPECIFIC CONTRIBUTION OF ICELAND AND ICELANDIC SOCIETY TO HISTORY OF IMPERFECTION.

    In his exhibition Unnar Örn has worked with a remarkable collection of photographs, taken by the late Sigurdur Guttormsson between 1930-1945. Guttormsson wanted to shed light on the poor living conditions which the Icelandic working class had to suffer in those years and traveled around the country to document their habitations. The photographs are a rare insight into living conditions and architectural history of Iceland in the years around 1940. The photographs have not been exhibited before but Unnar Örn has created a bookwork from this archive of photographs in limited edition which is available at Gallery Agust.

    Unnar Örn lives and works in Reykjavik, Iceland and he studied art at the Icelandic Academy of the Arts and at the Malmö Art Academy in Sweden. He has participated in numerous solo and group exhibitions in Europe and the USA from 1999 and recently in Sudsudvestur, Safnasafn, Gallery Luhring Augustine and the Akureyri Art Museum. Unnar Örn teaches at the Icelandic Academy of the Arts, has received numerous honors and grants and has been on the board of The Living Art Museum in Reykjavik since 2007. He is one of the artists featured in the very new Icelandic art book Icelandic Art Today.

    Unnar Örn - Unnar Örn

    • Um sérstakt framlag Íslands og íslensks samfélags til sögu ófullkomleikans

      2009

      Frá sýningu / From the exhibition

    • Um sérstakt framlag Íslands og íslensks samfélags til sögu ófullkomleikans

      Frá sýningu / From the exhibition

      On the specific contribution of Iceland and Icelandic society to history of imperfection.

    • Um sérstakt framlag Íslands og íslensks samfélags til sögu ófullkomleikans

      2009

      Frá sýningu / From the exhibition

      On the specific contribution of Iceland and Icelandic society to history of imperfection.

    • Um sérstakt framlag Íslands og íslensks samfélags til sögu ófullkomleikans

      2009

      Frá sýningu / From the exhibition

      Guests browse through the bookwork of Unnar Örn at the opening of his solo exhibition.

    • Um sérstakt framlag Íslands og íslensks samfélags til sögu ófullkomleikans

      Frá sýningu / From the exhibition

      On the specific contribution of Iceland and Icelandic society to history of imperfection.

    • Um sérstakt framlag Íslands og íslensks samfélags til sögu ófullkomleikans

      2009

      Frá sýningu / From the exhibition

      Guests enjoying the bookwork of Unnar Örn at the opening.

    • faux pas [fragment] - faux pas [manhattan schist] - faux pas [reader]

      2008

      Yfirlit / Overview

      From the group exhibition “Itʼs Not Your Fault” in Gallery Luhring Augustine.
      New York, USA. 2008.

    • Á Blönduósi

      Hluti af listaverki / Detail

      Ein af ljósmyndum Sigurðar Guttormssonar sem eru hluti af verki Unnars Arnar á sýningunni Um sérstakt framlag Íslands og íslensks samfélags til sögu ófullkomleikans. Þessi mynd er tekin á Blönduósi. Allar myndir Sigurðar er að finna í bók Unnars sem er ákaflega fallegt bókverk sem kemur út á opnunardegi sýningarinnar, 24. október n.k.

    • Árnastaðir

      Hluti af listaverki / Detail

      Ein af myndum Sigurðar Gottormssonar sem koma fram í verki Unnars Arnar Um framlag Íslands og íslenskrar menningar til sögu ófullkomleikans.